fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Íslandsvinurinn segir bótaþega og innflytjendur að knésetja ríkið – Vill sjá niðurskurð eins og hann fór í

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 07:30

Sir Jim Ratcliffe

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Jim Ratcliffe, meðeigandi Manchester United og stofnandi INEOS, hefur vakið mikla athygli í Bretlandi eftir ummæli sín um innflytjendamál og stöðu bresks efnahags.

Ratcliffe er mikill Íslandsvinur og eyðir talsverðum tíma hér á landi, hann á stórt landsvæði á Austurlandi.

Ratcliffe, sem er einn ríkasti maður Bretlands og á hlut í Manchester United, sagði að Bretland stæði frammi fyrir miklum samfélags- og efnahagslegum áskorunum vegna mikillar fjölgunar innflytjenda og álags á velferðarkerfið. Hann lét þessi ummæli falla á hliðarlínum evrópsks iðnleiðtogafundar í Antwerpen.

„Þú getur ekki verið með hagkerfi þar sem níu milljónir manna eru á bótum og á sama tíma mikill fjöldi innflytjenda að koma inn í landið. Þetta kostar of mikla peninga,“ sagði Ratcliffe.

Getty Images

Hann bætti við að Bretland hefði „í raun verið numið af innflytjendum“, og vísaði til fólksfjölgunar í landinu.

Ratcliffe sagðist einnig efins um að núverandi forsætisráðherra, Keir Starmer, væri rétti aðilinn til að snúa þróuninni við. Hann lýsti Starmer sem góðum manni, en sagði verkefnið afar erfitt og að efnahagur landsins væri ekki í góðu ástandi.

Hann greindi jafnframt frá því að hafa nýlega fundað með Nigel Farage, leiðtoga Reform-flokksins, og sagði hann greindan mann með góðan ásetning. Að mati Ratcliffe þyrfti leiðtoga sem væri tilbúinn að taka óvinsælar ákvarðanir til skemmri tíma til að leysa stór mál til lengri tíma.

Ratcliffe og Sir Alex Ferguson.
Getty Images

Ratcliffe líkti stöðunni við breytingar sem hann hefur staðið fyrir hjá Manchester United. Hann sagði að erfiðar ákvarðanir hjá félaginu hefðu gert sig óvinsælan um tíma, en að þær hefðu verið nauðsynlegar. Að hans mati væri nú farið að sjást merki um að þær breytingar væru að skila árangri. Rak hann mikið af starfsfólki úr starfi og hefur verið að skera niður kostnað hjá einu stærsta íþróttafélagi í heimi.

Hann telur svipaða nálgun nauðsynlega í landsmálum, sérstaklega varðandi innflytjendamál og bótakerfið. Ummæli hans hafa vakið talsverða umræðu í Bretlandi, enda snerta þau viðkvæm og pólitísk málefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta