fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Borgarstjóri og forsætisráðherra hjóla í Íslandsvininn eftir ummæli hans um innflytjendur

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 11:30

Ratcliffe hefur keypt stórt landsvæði á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, hefur gagnrýnt harðlega ummæli Sir Jim Ratcliffe, meðeiganda Manchester United, um innflytjendur og sagt þau ganga gegn gildum borgarinnar.

Ratcliffe, stofnandi og stjórnarformaður INEOS og minnihlutaeigandi í Manchester United, sagði nýverið að „Bretland hafi í raun verið numið af innflytjendum“. Ummælin vöktu sterk viðbrögð víða í Bretlandi.

Ratcliffe er mikill Íslandsvinur og eyðir talsverðum tíma hér á landi, hann á stórt landsvæði á Austurlandi.

Meira:
Íslandsvinurinn segir bótaþega og innflytjendur að knésetja ríkið – Vill sjá niðurskurð eins og hann fór í

Burnham svaraði í yfirlýsingu og var ómyrkur í máli. „Þessi ummæli ganga gegn öllu því sem Manchester hefur staðið fyrir í gegnum tíðina,“ sagði hann og vísaði til þess að Manchester hefði lengi verið borg þar sem fólk af ólíkum uppruna hefði unnið saman að uppbyggingu samfélagsins og stofnana þess, þar á meðal Manchester United.

Getty Images

Hann bætti við. „Það er eitt að kalla eftir takmörkunum á innflytjendum; að lýsa fólki sem kemur hingað sem fjandsamlegu innrásarafli er allt annað. Það er ónákvæmt, móðgandi, eldfimt og ætti að draga til baka.“

Burnham lagði einnig áherslu á jákvætt framlag innflytjenda. „Knattspyrnumenn sem hafa komið alls staðar að úr heiminum til að spila í Manchester hafa auðgað líf á svæðinu,“ sagði hann og hrósaði einnig starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og öðrum lykilatvinnugreinum.

Í því sem margir túlka sem skot á Glazer fjölskylduna, sem á meirihluta í Manchester United, sagði hann jafnframt að gagnrýni ætti frekar að beinast að þeim sem hafa lagt lítið af mörkum til samfélagsins en hafa í staðinn árum saman tekið fé út úr einni stoltustu stofnun okkar.

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kallaði ummæli Ratcliffe „móðgandi og röng“ og hvatti hann til að biðjast afsökunar.

Ratcliffe keypti hlut í Manchester United árið 2023 og hefur INEOS síðan tekið yfir stjórn knattspyrnumála hjá félaginu. Málið hefur vakið mikla pólitíska og samfélagslega umræðu í Bretlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð