

Kai Rooney er á leið í fótspor föður síns, Wayne Rooney, eftir að hafa fengið tilboð um nýjan samning við Manchester United.
Hinn 16 ára sóknarmaður hefur verið í akademíu félagsins í nokkur ár og þykir efnilegur leikmaður. Kai klárar grunnskóla í sumar og stendur nú frammi fyrir mikilvægu skrefi á ferlinum. Faðir hans, Wayne, er markahæsti leikmaður í sögu Manchester United og þekkir því vel kröfurnar sem fylgja því að brjótast í gegnum raðirnar á Old Trafford.
Kai er hluti af hópi 14 ungra leikmanna sem hafa fengið tilboð um nýja samninga, en félagið bindur miklar vonir við þennan árgang. Í hópnum er einnig Jacey Carrick, sonur Michaels Carrick, sem nú er bráðabirgðastjóri aðalliðsins. Rooney og Carrick, sem voru liðsfélagar á sínum tíma, sáust á Old Trafford nýverið þegar Kai lék sinn fyrsta leik í FA Youth Cup með U18-liðinu.
Kai er örvfættur sóknarmaður sem hefur heillað þjálfara með hæfileikum sínum. Honum hefur verið boðinn eins árs samningur sem gæti síðar breyst í þriggja ára atvinnumannasamning, metinn á um 50 þúsund pund á ári auk árlegs undirskriftarbónuss.
Samkvæmt enskum blöðum hefur Rooney-fjölskyldan þó ekki enn samþykkt tilboðið. Næstu mánuðir gætu því ráðið miklu um framtíð Kai hjá félaginu.