fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir tímabilið skipta minna máli vegna andláts Jota

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum markvörður Liverpool, Caoimhin Kelleher, segir að andlát Diogo Jota hafi haft slík áhrif á félagið að frammistaða og úrslit á vellinum skipti einfaldlega minna máli á þessu tímabili.

Portúgalinn lést í bílslysi síðasta sumar, aðeins 28 ára að aldri. Jota lék 182 leiki fyrir Liverpool og skoraði 65 mörk, auk þess að vinna enska bikarinn og deildabikarinn árið 2022 og ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili. Liverpool situr nú í sjötta sæti deildarinnar, langt frá toppnum.

„Þetta snýst miklu meira um fólkið og andlega líðan þeirra en fótboltann sjálfan. Fólk býst við því að leikmenn haldi bara áfram, en þannig virkar þetta ekki,“ segir Kelleher.

„Mér finnst skrítið þegar fólk gagnrýnir frammistöðu Liverpool. Að mínu mati skiptir þetta tímabil varla máli frá fótboltalegu sjónarhorni.“

Kelleher, sem yfirgaf Liverpool síðasta sumar og gekk til liðs við Brentford, viðurkenndi að það hefði verið ögn auðveldara að takast á við sorgina þar sem hann væri ekki lengur á Anfield.

„Þetta er gríðarlega erfitt fyrir þá sem eru enn þar á hverjum degi,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið