fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Riftu samningi fyrrum United-mannsins

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 07:30

Brandon Williams og Christian Eriksen / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hull City hefur rift samningi Brandon Williams eftir aðeins hálft tímabil hjá félaginu.

Enski varnarmaðurinn gekk til liðs við Hull síðasta sumar en hefur nú fengið leyfi til að leita sér að nýju félagi.

Samkvæmt Hull Live var samkomulagi náð um að slíta samningnum. Var hann til eins árs með möguleika á framlengingu, en sá möguleiki verður ekki nýttur úr þessu.

Williams, sem er uppalinn hjá Manchester United, hafði verið samningslaus í tólf mánuði áður en hann kom til Hull eftir að hafa verið þar á reynslu.

Hann lék aðeins einn leik fyrir aðallið félagsins, í ágúst, og var alls sex sinnum í leikmannahópnum.

Meiðsli í kálfa hrjáðu Williams mestallan tímann og náði hann aldrei almennilegu leikformi. Þjálfari Hull, Sergej Jakirovic, viðurkenndi í desember að Williams hefði ekki sýnt að hann hefði það sem þyrfti í ensku B-deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Í gær

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Í gær

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn