fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sagðist líða illa við kvöldverðarborðið – Skömmu síðar var hann látinn

433
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og markvarðaþjálfarinn Diego Ruspantini lést skyndilega í svefni aðeins 46 ára að aldri.

Hann hafði borðað kvöldverð með eiginkonu sinni og tveimur börnum á sunnudagskvöldið áður en hann lagðist til hvílu og sagðist líða illa. Síðar um kvöldið fann eiginkona hans hann meðvitundarlausan og var hann látinn þegar bráðaliðar komu á staðinn.

Dánarorsök er sögð vera af náttúrulegum orsökum, af völdum skyndilegra veikinda, en ítölsk yfirvöld hafa fyrirskipað frekari rannsóknir og hefur útför því verið frestað.

Ruspantini, sem var jafnan kallaður „Ruspa“, var vel þekktur í áhugamannafótbolta á Marche-svæðinu á Ítalíu. Hann hóf feril sinn með Porto Recanati og lék sem markvörður í neðri deildum ítalska deildakerfisins, þar á meðal í Serie D. Athygli vakti að hann skoraði eitt mark á ferlinum þrátt fyrir að vera markvörður.

Eftir að hann lagði skóna á hilluna starfaði hann sem markvarðaþjálfari og rak eigið markvarðanámskeið. Honum var lýst sem hlýjum og jákvæðum manni, sem hafði mikil áhrif á samfélagið í kringum sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið