fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Tottenham staðfestir kaup á enska landsliðsmanninum – Fer í númerið sem Gylfi bar hjá Spurs

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 16:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham Hotspur hefur staðfest kaup á enska landsliðsmanninum Conor Gallagher frá Atlético Madrid.

Gallagher fer í treyju númer 22 sem er sama tala og Gylfi Þór Sigurðsson notaði hjá félaginu.

Gallagher, sem er 25 ára gamall, hefur skrifað undir langtímasamning við Lundúnaliðið og verður þar með nýjasti leikmaður Spurs fyrir komandi tímabil.

Hann kemur til félagsins eftir veru hjá Atlético Madrid, þar sem hann lék á síðasta tímabili eftir að hafa áður gert það gott í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég er ótrúlega hamingjusamur og spenntur að vera kominn hingað og taka næsta skref á ferlinum hjá frábæru félagi,“ sagði Gallagher í fyrstu viðtölum sínum við heimasíðu Tottenham.

„Ég vildi verða Spurs-leikmaður og sem betur fer fannst félaginu það sama. Þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig og nú er ég tilbúinn að fara út á völl.“

Hann bætti við að hann hlakki mikið til að spila fyrir stuðningsmenn félagsins.

„Ég veit hversu frábærir stuðningsmennirnir eru. Ég er mjög ánægður með að vera orðinn hluti af þessu og vil skapa sérstakar stundir og minningar með þeim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið