fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Alfreð ræðir nýtt starf sitt í Þrándheimi – „Það er lykillinn að þeim framförum sem við viljum ná“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mánudag mætti Alfreð Finnbogason til starfa hjá Rosenborg. Í kjölfarið ræddi hann um móttökurnar og verkefnið sem fram undan er.

Alfreð var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg í síðustu viku, stórt verkefni fyrir þennan fyrrum framherja íslenska landsliðsins.

„Ég er mjög stoltur og glaður að vera kominn hingað til Rosenborg og hlakka mikið til fyrstu daganna í Þrándheimi,“ sagði Alfreð. Hann útskýrði jafnframt hvers vegna hann valdi að ganga til liðs við félagið.

„Metnaður Rosenborg og hugmyndafræðin sem félagið vinnur eftir passa mjög vel við minn metnað á ferlinum. Þess vegna fannst mér þetta vera rétti staðurinn fyrir mig og ég hlakka til að vera hluti af þessu verkefni.“

Alfreð sagði fyrstu viðræður hafa átt sér stað í byrjun desember og að tilfinningin hafi orðið æ jákvæðari eftir hvert samtal. „Eftir því sem við fórum nánar í smáatriðin varð ljóst að þetta væri góð samsvörun fyrir báða aðila. Nú er ég afar ánægður með að vera kominn á staðinn.“

Spurður hvað hann geti lagt til Rosenborg sagði Alfreð alþjóðlega reynslu sína skipta miklu máli. „Ég hef spilað á háu stigi í mörgum löndum og í ólíkum búningsklefum. Ég skil sjónarhorn leikmanna vel og það er afar mikilvægt, því leikmennirnir eru kjarninn í Rosenborg.“

Að lokum lagði hann áherslu á skipulag og samvinnu. „Ég er skipulagður einstaklingur og vil vinna markvisst þannig að við tökum góðar ákvarðanir saman. Það er lykillinn að þeim framförum sem við viljum ná.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið