fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
433Sport

Þegar 2 milljónir urðu að 50 milljónum á nokkrum dögum – Verðmiði sem Skagamenn tóku ekki í mál

433
Miðvikudaginn 25. júní 2025 08:30

Jóhannes Karl Guðjónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ÍA ætlaði að ráða Jóhannes Karl Guðjónsson sem þjálfara en verðmiðinn á að fá hann frá AB í Danmörku var slíkur að félagið gat ekki gert þetta.

Þessu heldur Sæbjörn Steinke fréttamaður Fótbolta.net fram, fyrst var talað um 2 milljónir íslenskra króna en líklega voru það 2 milljónir danskra króna sem það kostaði.

Skaginn rak Jón Þór Hauksson úr starfi og að endingu var það Lárus Orri Sigurðsson sem tók við keflinu.

„Formaðurinn sagði að varaáætlunin hefði verið klár, þeir ætluðu að taka Jóhannes Karl,“ sagði Sæbjörn á Fótbolta.net.

Jóhannes Karl er öllum hnútum kunnugur á Akranesi og hefur stýrt liðinu auk þess að alast þar upp og spila fyrir félagið.

„Ég sagði frá því síðast að það kostaði 2 milljónir að fá Jóhannes Karl, mögulega 2 milljónir í öðrum gjaldmiðli. Nú heyrir maður að verðmiðinn sé 50 milljónir króna, rúmar 2 milljónir danskra króna.“

„Ég hef heyrt að þeir hafi haldið að hann myndi ekki kosta svona mikið, allt sem ég heyri er að Jói Kalli hafi verið klár.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vinur Óskars Hrafns fer yfir málin og setur spurningamerki við hugmyndafræðina –  „Ég er inni á síðum og það er allt vitlaust“

Vinur Óskars Hrafns fer yfir málin og setur spurningamerki við hugmyndafræðina –  „Ég er inni á síðum og það er allt vitlaust“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Staðfesta kaup sín á Alberti fyrir 1,8 milljarð

Staðfesta kaup sín á Alberti fyrir 1,8 milljarð
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Risatilboði Newcastle í Elanga hafnað

Risatilboði Newcastle í Elanga hafnað
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ísland mætir Finnlandi á morgun

Ísland mætir Finnlandi á morgun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Undirbúningur fyrir EM formlega hafinn

Undirbúningur fyrir EM formlega hafinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fá 850 milljóna króna afslátt og Albert verður líklega áfram

Fá 850 milljóna króna afslátt og Albert verður líklega áfram