FH vann afar mikilvægan sigur á Vestra í fyrsta leik 12. umferðar Bestu deildar karla í dag.
Sigurður Bjartur Hallsson og Björn Daníel Sverrisson gerðu mörk FH í sitt hvorum hálfleiknum í 2-0 sigri.
FH lyfti sér þar með upp um fjögur sæti, er nú í því sjöunda með 14 stig, en öll önnur lið eiga þó eftir að spila í umferðinni.
Það er óhætt að segja að mark Sigurðar hafi verið af dýrari gerðinni, en það má sjá hér að neðan.