fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
433Sport

Höfnuðu Southgate

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 22. júní 2025 10:30

Gareth Southgate

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólska knattspyrnusambandið hafnaði því að ráða Gareth Southgate til starfa. Þetta er haft eftir formanni knattspyrnusambandsins þar í landi.

Southgate hefur verið án starfs síðan hann hætti með enska landsliðið eftir tap í úrslitaleik EM fyrir ári síðan en hafði hann áhuga á að taka við pólska landsliðinu eftir brotthvarf Michal Probierz á dögunum.

Probierz lét af störfum eftir rifrildi við landsliðsfyrirliðann og stórstjörnu Pólverja, Robert Lewandowski, sem kvaðst ekki ætla að spila aftur fyrir þjóð sína undir hans stjórn.

Cezary Kulesza, formaður pólska knattspyrnusambandsins, hefur nú staðfest að Southgate hafi sótt um starfið en að því hafi verið hafnað á forgrunni þess að enski þjálfarinn hefði ekki getað tryggt liðinu árangur.

Leit pólska sambandsins að nýjum landsliðsþjálfara heldur því áfram. Liðið er í hörkubaráttu við Finna og Hollendinga í sínum undanriðli fyrir HM á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þægilegt hjá meisturunum og nauðsynlegur sigur Vals

Þægilegt hjá meisturunum og nauðsynlegur sigur Vals
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Eru til í að losa United við hann – Vill ekki fara

Eru til í að losa United við hann – Vill ekki fara
433Sport
Í gær

Gæti snúið aftur eftir að hafa valdið miklum vonbrigðum

Gæti snúið aftur eftir að hafa valdið miklum vonbrigðum
433Sport
Í gær

Damir lýsir lygilegum aðdraganda að ævintýri sínu í vetur – Unnustan sagði honum að svara ekki símtalinu

Damir lýsir lygilegum aðdraganda að ævintýri sínu í vetur – Unnustan sagði honum að svara ekki símtalinu
433Sport
Í gær

Reynir að þrýsta í gegn skiptum til Manchester United

Reynir að þrýsta í gegn skiptum til Manchester United
433Sport
Í gær

Nýtt ofurpar á leiðinni – Gengur ekkert í vinnunni en allt í blóma í einkalífinu

Nýtt ofurpar á leiðinni – Gengur ekkert í vinnunni en allt í blóma í einkalífinu
433Sport
Í gær

Enn ‘þunnir’ eftir að hafa fengið inn nýjan stjóra – ,,Ekki eitthvað sem við gerum á fjórum dögum“

Enn ‘þunnir’ eftir að hafa fengið inn nýjan stjóra – ,,Ekki eitthvað sem við gerum á fjórum dögum“
433Sport
Í gær

Stjarna hitti aðra stjörnu og þurfti að bíða í 30 mínútur eftir mynd

Stjarna hitti aðra stjörnu og þurfti að bíða í 30 mínútur eftir mynd