Vegna undanúrslita í Mjólkurbikar karla hefur leiktíma í leik KA og Vals í Bestu deild karla verið breytt.
Valur tryggði sér sæti í undanúrslitunum með sigri á ÍBV í vikunni og tekur liðið á móti Stjörnunni í undanúrslitum þann 1. júlí.
Liðið átti að mæta KA fyrir norðan þremur dögum áður, næstkomandi laugardag, en hefur leikurinn verið færður fram til föstudags klukkan 18:30.
KA – Valur – Besta deild karla
Var: Laugardaginn 28. júní kl. 17.00 á Greifavellinum
Verður: Föstudaginn 27. júní kl. 18.30 á Greifavellinum