Arsenal hefur náð samkomulagi við Benjamin Sesko ef marka má þýska blaðið Bild.
Framherjinn ungi hefur verið sterklega orðaður við Arsenal undanfarið í kjölfar frábærs tímabils með RB Leipzig, þar sem hann skoraði 21 mark í 45 leikjum.
Arsenal hefur ekki enn lagt fram tilboð í leikmanninn en hefur nú samið við leikmanninn sjálfan ef marka má þessar nýjustu fréttir.
Nú þarf enska stórliðið að ganga að verðmiða Leipzig, en ekki er alveg á hreinu hver hann er. Það hefur verið rætt um upphæð í kringum 70 milljónir punda en því einnig verið fleygt fram að hann sé töluvert dýrari en það.
Sesko er sagður afar spenntur fyrir því að ganga í raðir Arsenal, sem hefur vantað alvöru framherja undanfarin ár.