fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
433Sport

Greenwood sást í Manchester með fyrrum liðsfélaga hjá United

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. júní 2025 09:50

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mason Greenwood er staddur í Manchester um þessar mundir, þar sem hann heldur sér í standi í sumarfríinu.

Enski sóknarmaðurinn átti frábært tímabil með Marseille í Frakklandi, þangað sem hann kom í fyrra. Skoraði hann 22 mörk og lagði upp 6 í 36 leikjum.

Hefur hann verið orðaður við brottför og talið að lið á Englandi, Spáni, Ítalíu og Sádi-Arabíu hafi áhuga.

Greenwood æfði ekki einn þegar ljósmyndarar komu auga á hann heldur var hann með fyrrum liðsfélaga sínum úr yngri liðum Manchester United, D’Mani Mellor.

Mellor á að baki einn leik fyrir aðallið United í Evrópudeildinni 2019. Hann yfirgaf Old Trafford 2022 og fór til Wycombe, en í dag spilar hann með Macclesfield.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hennar djarfasti klæðaburður til þessa? – Sjáðu myndina sem hefur fengið fólk til að tala

Hennar djarfasti klæðaburður til þessa? – Sjáðu myndina sem hefur fengið fólk til að tala
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arteta missir lykilmann út teymi sínu – Að fá starf sem aðalþjálfari

Arteta missir lykilmann út teymi sínu – Að fá starf sem aðalþjálfari
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum
Laporte að snúa aftur?