Kieran Trippier bakvörður Newcastle hefur fundið ástina á nýjan leik en hann vakti athygli á Ibiza um helgina.
Trippier var þar mættur að gera sér glaðan dag en fljótlega sást að hann var með konu sér við hlið.
Um er að ræða raunveruleikastjörnuna Chloe Ferry sem er þekktust fyrir þátttöku sínum í Geordie Shore sem var á árum áður vinsæll þáttur.
Trippier gekk í gegnum skilnað síðasta haust þegar Charlotte þá eiginkona hans gekk á dyr og bað um skilnað.
Þau eiga þrjú börn saman en eftir nokkurn tíma sem einhleypur maður hefur Trippier sem var lengi lykilmaður í enska landsliðinu fundið ástina.
Trippier sást halda utan um rassinn á Ferry á meðan þau nautu þess að hlusta á ljúfa tóna á Ibiza.