Barcelona hefur tryggt sér þjónustu Joan Garcia, en hann kemur frá nágrönnunum í Espanyol.
Börsungar virkjuðu 25 milljóna evra riftunarákvæði í samningi markvarðarins við Espanyol og skrifar hann undir sex ára samning.
Garcia hafði verið orðaður við fleiri stórlið, þar á meðal Arsenal, en Barcelona vann kapphlaupið.
Garcia átti stóran þátt í því að Espanyol komst aftur upp í La Liga í fyrra og var þá hvað besti leikmaður liðsins er það hélt sér uppi í vor. Varði hann til að mynda flest skot í La Liga, eða 146.
FC Barcelona sign Joan Garcia
— FC Barcelona (@FCBarcelona) June 18, 2025