Ítalíumeistarar Napoli eru líklegir til að fá tvo leikmenn frá Liverpool í sumar ef marka má fréttir þar í landi.
Napoli hefur þegar fengið Kevin De Bruyne og vill styrkja sig vel fyrir átökin í Meistaradeildinni og titilvörninni heima fyrir.
Samkvæmt nýjustu fréttum er líklegt að Darwin Nunez og Federico Chiesa endi báðir hjá Napoli.
Nunez hefur ekki staðist væntingar á sínum þremur árum hjá Liverpool og er félagið til í að losa hann nú.
Chiesa kom frá Juventus í fyrra en var í algjöru aukahlutverki hjá Englandsmeisturunum og snýr hann líklega heim til Ítalíu aftur.