KA fær að spila heimaleik sinn í 2. umferð Sambandsdeildarinnar á heimavelli sínum á Akureyri eftir að UEFA veitt fyrir því undanþágu.
KA kemur beint inn í 2. umferð undankeppninnar sem ríkjandi bikarmeistari og á morgun kemur í ljós hvaða andstæðinga liðið getur fengið þar, þegar dregið verður.
KA tók einnig þátt í undankeppninni fyrir tveimur árum en þurfti þá að leika á heimavelli Fram í Úlfarsárdal.
Tilkynning KA
Það ríkir mikil gleði og þakklæti í herbúðum KA, nú þegar ljóst er að félagið fær að spila heimaleik sinn í 2. umferð Sambandsdeildarinnar á Akureyri – eftir að UEFA veitti félaginu sérstaka undanþágu til leikjahalds á Greifavellinum í fyrstu tveim umferðum Sambandsdeildarinnar. Eins og fram hefur komið situr KA hjá í fyrstu umferð og mun því spila fyrsta leik sinn í Sambandsdeildinni í 2. umferð.
Þetta eru stórtíðindi fyrir stuðningsfólk KA, sem fær nú tækifæri til að styðja sitt lið á eigin heimavelli í Evrópukeppni. Fyrir tveimur árum komst KA í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar og spilaði þá heimaleiki sína á Fram vellinum í Úlfarsárdal og á Laugardalsvellinum.
Ein ástæða undanþágunnar er hin metnaðarfulla og öfluga uppbygging á KA-svæðinu, þar sem nú er unnið hörðum höndum að því að skapa fyrsta flokks aðstöðu sem uppfyllir alla alþjóðlega staðla. Þegar framkvæmdum lýkur mun KA búa yfir glæsilegum og fullbúnum heimavelli sem verður verðugur vettvangur fyrir framtíðarfótbolta á alþjóðlegu sviði. Í sumar hafa sjálfboðaliðar á vegum KA unnið hörðum höndum að gera Greifavöllinn hæfan til þess að fá náð fyrir augum UEFA og tókst það eftir gríðarlega vinnu sem lögð var í völlinn og umhverfi hans. KA vill sérstaklega þakka sjálfboðaliðunum fyrir það grettistak sem þeir hafa lyft í gerð vallarins, alveg frá fyrsta degi.
„Þetta er risaskref fyrir félagið og samfélagið allt á Akureyri. Við erum gríðarlega stolt af þeirri viðurkenningu sem felst í því að fá að spila fyrsta heimaleik okkar í Evrópu á Greifavellinum – þrátt fyrir að vera í miðri framkvæmd. Þetta sýnir að framtíðarsýn KA og Akureyrarbæjar nýtur virðingar og trausts í hinu metnaðarfulla alþjóðlega knattspyrnuumhverfi“ segir Hjörvar Maronsson formaður knattspyrnudeildar KA.
Dregið verður í annarri umferð Sambandsdeildarinnar í Nyon í Sviss á morgun 18. júní þar sem KA verður í pottinum. Leikir annarrar umferðar fara fram dagana 24. og 31. júlí næstkomandi. Auk þess að vita hver andstæðingur okkar verður þá kemur í ljós þegar dregið er hvort við munum spila fyrri eða síðari leikinn á heimavelli. Það er þó ljóst að hér verður brotið blað í sögu félagsins en þetta verður í fyrsta skiptið sem Evrópuleikur í knattspyrnu fer fram á KA-svæðinu. KA lék Evrópuleiki sína árið 1990 og 2003 á Akureyrarvelli og svo eins og kom fram á Framvelli og Laugardalsvelli sumarið 2023.