fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
433Sport

Mikið að gera á skrifstofu City – Tókst að skrá alla í tæka tíð

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. júní 2025 08:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að nóg hafi verið að gera hjá Manchester City undanfarna sólarhringa. Voru enn ein leikmannakaupin staðfest nú í morgunsárið.

Miðjumaðurinn Tijjani Reijnders, sem átti gott tímabil með AC Milan, er nú genginn í raðir félagsins á 46,5 milljónir punda. Skrifar hollenski landsliðsmaðurinn undir fimm ára samning.

Í gær voru þrír leikmenn staðfestir hjá City, sem mistókst að vinna ensku úrvalsdeildina fimmta árið í röð á nýafstaðinni leiktíð. Rayan Cherki er kominn frá Lyon. Um er að ræða 22 ára gamlan leikmann sem getur spilað framarlega á miðjunni og úti á kanti.

Þá er vinstri bakvörðurinn Rayan Ait-Nouri einnig mættur frá Wolves og þá sótti City nýjan þriðja markvörð, Marcus Bettenelli frá Chelsea.

City sá til þess að klára skipti allra leikmanna fyrir klukkan 18 í gær, en þá rann út frestur til að skrá leikmenn fyrir HM félagsliða sem senn hefst í Bandaríkjunum. City ríður á vaðið gegn Wydad frá Marokkó eftir viku og mætir einnig Al-Ain og Juventus í riðlakeppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Staðfesta komu De Bruyne

Staðfesta komu De Bruyne
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Langt á milli í viðræðunum um Antony

Langt á milli í viðræðunum um Antony
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Myndband: Trent tjáir sig í fyrsta sinn sem leikmaður Real Madrid – Spænskukunnátta hans vekur athygli

Myndband: Trent tjáir sig í fyrsta sinn sem leikmaður Real Madrid – Spænskukunnátta hans vekur athygli
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu myndina: Trent mættur til Madrídar og verður kynntur til leiks í dag

Sjáðu myndina: Trent mættur til Madrídar og verður kynntur til leiks í dag
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segja ungstirnið hafa valið sitt nýja félag

Segja ungstirnið hafa valið sitt nýja félag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta sagði Messi í hita leiksins í gær – Bað hann um að tala minna

Þetta sagði Messi í hita leiksins í gær – Bað hann um að tala minna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

City borgaði 18 milljarða fyrir mennina þrjá sem fara með þeim á HM

City borgaði 18 milljarða fyrir mennina þrjá sem fara með þeim á HM
433Sport
Í gær

Þeir sem koma út í plús og þeir sem koma út í mínus eftir landsleikina – Hausverkur Arnars í nokkrum stöðum

Þeir sem koma út í plús og þeir sem koma út í mínus eftir landsleikina – Hausverkur Arnars í nokkrum stöðum
433Sport
Í gær

Tíðindi frá Portúgal – Umboðsmaður Gyokeres fundaði með Arsenal í dag

Tíðindi frá Portúgal – Umboðsmaður Gyokeres fundaði með Arsenal í dag