Hjörvar Hafliðason segir það af og frá að fyllerí einkenni stemmingu á kappleikjum á Íslandi eins og einhverjir vilja halda fram. Nokkur umræða hefur skapast um slíkt undanfarið.
Herferð um málið hefur myndast og byggðist upp fyrir þing hjá ÍSÍ. Áfengi er leyft á mörgum kappleikjum sem fellur misjafnlega í kramið.
„Núna er komin einhver stemming að taka þetta af fólki, landslið leiðinlegasta fólk á Íslandi er búið að taka sig saman. Þau eru komin með blaðamann á Vísi með sér í lið sem gerir endalausar fréttir,“ segir Hjörvar í þætti sínum Dr. Football.
Aukning á framboði af áfengum drykkjum hefur átt sér stað síðustu ár sem mörgum finnst jákvæð þróun og líkjast því sem erlendis er.
„Það sér að fólk er að hafa gaman á vellinum á Íslandi, það hefur hingað til ekki verið leyfilegt. Við erum alltaf að reyna að gera þetta eins leiðinlegt og hægt er, setjum upp hlaupabraut, byggjum lélega stúku og höfum hana ekki í sól,“ segir Hjörvar.
Hjörvar fór sjálfur á völlinn um helgina og sá ekkert nema gleði. „Ég var að labba þarna um og það voru allir í laufléttum gír, svo kemur þetta lið. Kannski fer einhver yfir strikið en hann gerir það þá bara einu sinni, ég hef ekki séð það samt sem áður að einhver fari yfir það.“
„Þetta er tekjuöflun fyrir liðin.“