fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Rýfur þögnina um myndböndin umdeildu: Opinberar að hann sé samkynhneigður – „Ég skammaðist mín mikið“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 08:09

Skjáskot úr öðru af myndböndunum frægu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum dómarinn David Coote rauf í gær þögnina í fyrsta sinn síðan hann var rekinn úr starfi fyrir hneykslismál. Um leið opinberaði hann að hann væri samkynhneigður.

Coote var rekinn í desember í kjölfar þess að gömul myndbönd fóru í dreifingu af honum. Í öðru þeirra lýsti hann yfir vanþóknun sinni á Jurgen Klopp, fyrrum stjóra Liverpool. Var það myndband tekið í kórónuveirufaraldrinum.

Meira
Staða dómarans versnar hratt – Nú var myndband af honum að taka kókaín á miðju móti að leka út

Hitt myndbandið á að hafa verið tekið á meðan EM síðasta sumar stóð yfir. Þar mátti sjá Coote innbyrða kókaín, daginn eftir að hafa starfað í VAR-herberginu á leik Spánar og Þýskalands í 8-liða úrslitum.

Í kjölfar rannsóknar var hann rekinn af dómarasamtökunum.

„Ég skammaðist mín mikið á unglingsárunum. Ég kom ekki út fyrir foreldrum mínum fyrr en ég var 21 árs. Ég kom ekki út fyrir vinum mínum fyrr en ég var 25 ára,“ segir Coote í viðtali við The Sun.

Getty Images

„Kynhneigð mín er ekki það eina sem kom mér í þessa stöðu. En ég er ekki einlægur ef ég segi ekki að ég sé samkynhneigður og að ég hafi átt í vandræðum með að fela það. Ég faldi tilfinningar mínar sem ungur dómari og kynhneigð mína einnig. Það er góður eiginleiki sem dómari en hræðilegur eiginleiki sem manneskja. Þetta hefur leitt mig inn á braut alls konar hegðunnar.

Ég hef þurft að þola alls konar áreiti á ferli mínum sem dómari. Að opinbera að ég sé samkynhneigður ofan á það allt saman hefði verið mjög erfitt.“

Þá gaf Coote einnig út yfirlýsingu sem var birt á Sky Sports.

„Þetta hefur verið einn erfiðasti kafli lífs míns. Ég tek ábyrgð á gjörðum mínum. Mér þykir svo leitt að hafa komið illa fram og þann neikvæða blett sem þetta setti á leikinn sem ég elska,“ segir Coote þar.

„Ég vona að fólk geti skilið að þetta voru augnablik sem voru tekin upp á mjög erfiðum tíma í mínu einkalífi. Þau endurspegla ekki hver ég er í dag eða hvað mér finnst.

Nú einbeiti ég mér að andlegri heilsu minni og velferð. Ég vona að reynsla mín, innan vallar sem utan, komi að góðu fyrir fótboltann einhvern tímann í framtíðinni. Ég vil þakka öllum fyrir stuðninginn undanfarið, sérstaklega fjölskyldu minn, vinum, fyrrum samstarfsmönnum, dómarasamtökunum, Howard Webb og svo miklu fleirum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn