fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
433Sport

Kristján hneykslaður á sögusögnunum og vill sjá annan mann ráðinn

433
Föstudaginn 20. júní 2025 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef marka má helstu sparkspekinga virðist Jóhannes Karl Guðjónsson vera að taka við karlaliði ÍA á nýjan leik. Ekki eru allir sannfærðir um þessa yfirvofandi ráðningu.

Fyrr í vikunni var tilkynnt að Jón Þór Hauksson og knattspyrnudeild ÍA hefðu slitið samstarfi sínu eftir dapurt gengi það sem af er móti í Bestu deildinni. Skagamenn eru á botninum með níu stig.

Jóhannes er þjálfari AB Kaupmannahafnar í dönsku C-deildinni en háværir orðrómar eru um að hann sé að koma heim og taka við ÍA.

„Mér finnst hann fljótur að gefast upp úti. Hann endaði tímabilið vel og var að fá íslenskan markmann,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson um málið í Þungavigtinni, og á þar við Adam Inga Benediktsson sem er mættur til AB frá Öster.

Kristján sagði jafnframt að Skagamenn ættu að hans mati að horfa í mann eins og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem er að gera frábæra hluti með Njarðvík, en Jóhannes.

„Það sem ég er mest hissa á er samt að Skagamenn fari í þessa átt. Jóhannes Karl var búinn á Skaganum áður en KSÍ bjargaði þeim frá því að þurfa að reka hann. Ég hefði frekar farið í Gunnar Heiðar. Verðmiðinn hjá Njarðvíkingum er 5,5 milljónir.“

Jóhannes Karl stýrði ÍA einnig frá 2018 til 2021, áður en hann gerðist aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, þaðan sem hann hélt svo til Danmerkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liðsfélagi Alberts möguleiki fyrir United ef þeir landa ekki einum af þeim stóru

Liðsfélagi Alberts möguleiki fyrir United ef þeir landa ekki einum af þeim stóru
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Leverkusen og Liverpool hefja viðræður um þriðja leikmanninn þetta sumarið

Leverkusen og Liverpool hefja viðræður um þriðja leikmanninn þetta sumarið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Viðræður að sigla í stand og labbar burt frítt frá Arsenal í sumar

Viðræður að sigla í stand og labbar burt frítt frá Arsenal í sumar
433Sport
Í gær

Enskt lið í Meistaradeildinni hefur áhuga á því að fá Rashford

Enskt lið í Meistaradeildinni hefur áhuga á því að fá Rashford
433Sport
Í gær

Hlakkaði í stuðningsmönnum Liverpool yfir hörmungum Trent í fyrsta leik – Sjáðu öll mistökin hans

Hlakkaði í stuðningsmönnum Liverpool yfir hörmungum Trent í fyrsta leik – Sjáðu öll mistökin hans