fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
433Sport

Glæsilegur sigur Strákanna okkar gegn Englandi á Wembley – Baulað hressilega á enska liðið

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 7. júní 2024 20:38

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið heimsótti það enska í vináttulandsleik á Wembley í kvöld og vann stórglæsilegan sigur, þvert á það sem allir héldu.

Strákarnir okkar spiluðu fyrri hálfleik frábærlega og gáfu fá færi á sér. Á 12. mínútu kom Jón Dagur Þorsteinsson íslenska liðinu yfir eftir stórgóða sókn. Lék hann á John Stones og renndi boltanum framhjá Aaron Ramsdale í markinu. Staðan í hálfleik 0-1.

Seinni hálfleikur var ekki síðri hjá Íslandi, sem hefði hreinlega getað skorað fleiri mörk. Áfram gekk enska liðinu illa að ógna og hafði Hákon Rafn Valdimarsson í marki Íslands fremur lítið að gera.

Englandi tókst ekki að finna jöfnunarmark og meira var ekki skorað. Lokatölur 0-1, glæsilegur sigur Íslands á Englandi staðreynd. Sannkölluð liðsframmistaða.

Enska liðið ætlar sér stóra hluti á EM í Þýskalandi í sumar og því ljóst að úrslit kvöldsins eru reiðarslag. Þess má geta að það var baulað hressilega á enska liðið í leikslok í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham
433Sport
Í gær

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið
433Sport
Í gær

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi