fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Á leið í fangelsi í 15 mánuði – Blindfullur og dópaður á 160 kílómetra hraða

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 9. október 2024 21:00

Stokes og fyrrum kærasta hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Stokes fyrrum framherji Arsenal og Celtic hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir ofsaakstur og að hafa verið með kókaín á sér.

Þessi 36 ára gamli fyrrum framherji keyrði á 160 kílómetra hraða á klukkustund þegar lögreglan tók hann nálægt Dublin í Írlandi.

Hann var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi en hann var blindfullur og undir áhrifum eiturlyfja þegar hann var tekinn.

Þá var Stokes með kókaín á sér sem er metið á hálfa milljón, hann faldi eiturlyfin í sokk sem var í bílnum.

Tíu dögum eftir að hafa verið tekinn á bílnum fundust 86 ólöglegar töflur á heimili hans og var hann einnig dæmdur fyrir það

Stokes áfrýjaði dómnum í gær og borgaði fyrir það að þurfa ekki að fara strax í fangelsi á meðan málið er enn í kerfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina