fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
433Sport

Svona hafa úrslitin verið hjá United á tímabilinu – Örfáir sigrar í tíu leikjum

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 4. október 2024 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það gengur erfiðlega hjá Manchester United að vinna leiki en liðið hefur aðeins unnið þrjá af tíu keppnisleikjum tímabilsins.

Einn af þeim var gegn Barnsley í deildarbikarnum auk sigra gegn Fulham og Southampton í deildinni.

LJóst er að staða Erik ten Hag hangir á bláþræði og slæm úrslit gegn Aston Villa á sunnudag gætu kostað hann starfið.

Vandræði United halda bara áfram að aukast og aukast en liðið gerði 3-3 jafntefli Porto á útivelli í Evrópudeildinni í gær.

United komst í 0-2 forystu nokkuð snemma leiks þar Marcus Rashford og Rasmus Hojlund skoruðu mörkin. Eftir það hrundi leikur United og heimamenn gengu á lagið, staðan var 2-2 í hálfleik. Diogo Dalot og Matthijs De Ligt voru í stökustu vandræðum í varnarleiknum.

Samuel Omorodion kom Porto svo í 3-2 snemma í síðari hálfleik með öðru marki sínu leiknum en aftur voru Dalot og De Ligt í bullinu. United sótti nokkuð eftir það en Bruno Fernandes var rekinn af velli fyrir háskaleik á 82 mínútu leiksins. Annað rauða spjald Bruno í tveimur leikjum en hann var einnig rekinn af velli í deildinni um liðna helgi.

Allt stefndi í tap United en Harry Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma með skalla eftir horn. United með tvö stig eftir tvo leiki í Evrópudeildinni. Dagar Ten Hag í starfi gætu brátt verið taldir en liðið heimsækir Aston Villa á sunnudag sem gæti orðið hans síðasti leikur með liðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Valur fær Kristófer Dag frá Fjölni – „Hann er einbeittur í að bæta sig“

Valur fær Kristófer Dag frá Fjölni – „Hann er einbeittur í að bæta sig“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Viktor Daði byrjaði í fræknum sigri danska liðsins á Spáni

Viktor Daði byrjaði í fræknum sigri danska liðsins á Spáni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Van Dijk vill ekki segja frá því hvað hann ræddi við Salah

Van Dijk vill ekki segja frá því hvað hann ræddi við Salah
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Reykjavíkurmótið rúllar af stað á morgun – Svona er dagskráin

Reykjavíkurmótið rúllar af stað á morgun – Svona er dagskráin
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Lögregla rannsakar árás sem geysivinsæll áhrifavaldur varð fyrir – Þrír verið handteknir og borgarstjórinn sendi kveðju

Lögregla rannsakar árás sem geysivinsæll áhrifavaldur varð fyrir – Þrír verið handteknir og borgarstjórinn sendi kveðju
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stjarnan sækir markvörð frá Augnablik

Stjarnan sækir markvörð frá Augnablik