fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Arsenal gæti misst unga markavél til Manchester United – Enginn skorað meira á einu tímabili

Victor Pálsson
Sunnudaginn 21. júlí 2024 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chido Obi-Martin, undrabarn Arsenal, ku vera á óskalista Manchester United en frá þessu er greint í dag.

Um er að ræða afskaplega efnilegan leikmann en hann er 16 ára gamall og leikur með unglingaliðum Arsenal.

Athletic greinir frá en United er talið hafa mikinn áhuga á að fá leikmanninn og bauð honum á æfingar í vikunni.

Viðræður á milli umboðsmanna sóknarmannsins og United eru þó ekki byrjaðar en Arsenal vill svo sannarlega halda stráknum.

Obi-Martin er sagður hafa engan áhuga á að samþykkja nýjasta tilboð Arsenal en hann má skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning í nóvember.

Það væri áfall fyrir Arsenal ef Obi-Martin semur við United en enginn leikmaður hefur skorað meira en hann á einu tímabili fyrir U18 lið Arsenal eða 28 mörk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur