Alexander Máni Guðjónsson skrifaði undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna á dögunum. Alexander lék einnig sinn fyrsta leik í Bestu deild karla á dögunum þegar hann kom inn á gegn KA og varð á sama tíma þriðji yngsti leikmaðurinn sem spilar í efstu deild aðeins 14 ára og 343 daga gamall þegar leikurinn fór fram. Alexander hefur á síðustu mánuðum verið til skoðunar hjá erlendum liðum, Benfica, FC Midtjylland og FCK.
“Það hefur verið gríðarlega gaman að fylgjast með Alexander Mána stíga sín fyrstu skref enda ótrúlega spennandi leikmaður sem er með höfuðið rétt skrúfað á og mikill leiðtogi sem er viljugur til að leita allra leiða til að ná sem lengst. Það verður mjög gaman að fylgjast með honum í framtíðinni í bláa búningnum.” segir Helgi Hrannarr, formaður mfl. ráðs karla.
„Ég er mjög stoltur að skrifa undir við mitt uppeldisfélag og þakklátur fyrir traustið sem þeir hafa sýnt mér. Ég er virkilega spenntur fyrir framhaldinu með Stjörnunni og þeirri vinnu sem er framundan, skíni Stjarnan”, segir Alexander Máni eftir að hafa skrifað undir.
Alexander á ekki langt að sækja hæfileikana en fyrrum atvinnu og landsliðsmaðurinn, Guðjón Baldvinsson er faðir hans.