fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
433Sport

Viss um að dómarinn sé að hundsa símtölin – ,,Hann hefur ýtt á rauða takkann“

Victor Pálsson
Laugardaginn 13. apríl 2024 22:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary O’Neil, stjóri Wolves, var gríðarlega ósáttur með dómgæsluna í leik liðsins við West Ham í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

O’Neil kvartaði verulega eftir 2-1 tap en mark var tekið af Wolves undir lok leiks vegna rangstöðu en Max Kilman virtist hafa jafnað metin á lokamínútunum.

O’Neil þekkir fyrrum dómara ensku deildarinnar, Howard Webb, vel og hefur hringt þónokkrum sinnum í félaga sinn á þessu tímabili.

Webb lagði flautuna á hilluna 2014 en hefur undanfarin ár starfað í sjónvarpi og fylgist vel með því sem gengur á í efstu deild.

,,Ef hann sér að eitthvað hefur gerst í okkar leik og hann sé nafnið mitt á símanum þá hugsar hann með sér hvort hann þurfi að svara þessu,“ sagði O’Neil með bros á vör.

,,Ég er nokkuð viss um að hann hafi ýtt á rauða takkann nokkrum sinnum en hann er alltaf opinn og hreinskilinn, það er það eina sem ég bið um.“

,,Ég heimta ekki að hann sé sammála mér, ég vil bara fá að vita af hverju ákveðnar ákvarðanir eru teknar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Búinn að kveðja Arsenal fyrir Brasilíu

Búinn að kveðja Arsenal fyrir Brasilíu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Albert í miklum gír eftir sigurinn í kvöld: Skoraði á Lárus að kíkja með sér út á lífið – ,,Nóttin er ung, við erum að fara eitthvað“

Albert í miklum gír eftir sigurinn í kvöld: Skoraði á Lárus að kíkja með sér út á lífið – ,,Nóttin er ung, við erum að fara eitthvað“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu frábært mark Andra gegn Skotum

Sjáðu frábært mark Andra gegn Skotum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Tryggðu sér sæti á HM í fyrsta sinn

Tryggðu sér sæti á HM í fyrsta sinn
433Sport
Í gær

Vinkona Glódísar segir frá viðbjóðnum sem hún situr undir – Endalaust af óumbeðnum typpamyndum rignir yfir hana

Vinkona Glódísar segir frá viðbjóðnum sem hún situr undir – Endalaust af óumbeðnum typpamyndum rignir yfir hana
433Sport
Í gær

United undirbýr næsta tilboð í Mbeumo sem verður líka það síðasta

United undirbýr næsta tilboð í Mbeumo sem verður líka það síðasta