fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
433Sport

Ísraelskir blaðamenn punduðu á íslenska landsliðsþjálfarann á fréttamannafundi – „Þú varst að tala um hluti sem þú veist ekkert um“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. mars 2024 12:05

Age Hareide, fyrrum landsliðsþjálfari. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar Sigurðsson skrifar frá Búdapest

Ísraelskir blaðamenn fóru ekki mjúkum höndum um Age Hareide, þjálfara íslenska karlalandsliðsins, á blaðamannafundi hér í Búdapest sem lauk rétt í þessu.

Ísland og Ísrael mætast á morgun í undanúrslitum umspils um sæti á EM. Hariede sagði á dögunum að honum finndist óþægilegt að mæta Ísrael vegna stríðsátak­anna á Gasa.

„Þú tjáðir þig um stríðið í Ísrael. Þú varst að tala um hluti sem þú veist ekkert um. Sérðu eftir því sem þú sagðir? Ísrael hefur orðið fyrir fjöldamorði og þú tókst pólitíska afstöðu,“ sagði ísraelskur blaðamaður við Hareide á fundinum í dag.

„Þaðan sem ég kem er tjáningarfrelsi. Stundum ruglast orðin í þýðingunni. Ég hef mikinn áhuga á pólitík. Ég vil að það verði friður. Ég kem frá friðsömu landi og tek enga afstöðu í þessu. Þetta snýst meira um að mér þykir leiðinlegt að þurfa að spila í þessari stöðu. Ég hef ekkert á móti Ísraelum,“ svaraði Hareide.

Annar ísraelskur blaðamaður tók næst til máls.

„Áttar þú þig á hvað Ísrael hefur gengið í gegnum?“ spurði hann. „Muntu taka í höndina á Ísraelum á morgun?“ bætti hann við.

„Auðvitað mun ég gera það,“ sagði Hareide.

„Við spilum á móti fótboltamönnum og mér finnst ekki sanngjarnt að fara inn í þessa pólitísku umræðu núna. Við viljum tala um fótbolta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu hræðileg mistök Hákons gegn Aston Villa í kvöld – Var reiður út í sjálfan sig eftir mark Harvey Elliott

Sjáðu hræðileg mistök Hákons gegn Aston Villa í kvöld – Var reiður út í sjálfan sig eftir mark Harvey Elliott
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fékk símtal mánuði eftir einnar nætur gaman með konu – Hótaði þessu ef ekki ætti illa að fara

Fékk símtal mánuði eftir einnar nætur gaman með konu – Hótaði þessu ef ekki ætti illa að fara
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Telur það glæpsamlegt ef United skoðaði þetta ekki í sumar

Telur það glæpsamlegt ef United skoðaði þetta ekki í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Víðir segir þennan misskilning útbreiddan í íslensku samfélagi – Þetta heyrði hann í sjónvarpinu um helgina

Víðir segir þennan misskilning útbreiddan í íslensku samfélagi – Þetta heyrði hann í sjónvarpinu um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Endurkoma Jude Bellingham í kvöld

Endurkoma Jude Bellingham í kvöld