Markið sem Rasmus Hojlund skoraði fyrir Manchester United í gær hefði aldrei átt að standa, United fékk aukaspyrnu en Casemiro var rangstæður þegar hún kom.
United hafði þá fengið ódýra aukaspyrnu úti á kanti en Casemiro var rangstæður inn í teignum .
VAR gat ekki tekið á málinu þar sem markið var skorað úr öðru augnabliki.
United hefði hins vegar ekki átt að fá hornspyrnuna þar sem um rangstæðu var að ræða.
„Þetta var ekki aukaspyrna, það mun pirra Villa meira,“ sagði Roy Keane fyrrum fyrirliði United eftir leikinn.
Atvikið má sjá hér að neðan.