Fánar sem enska félagið Fulham setti á heimavöll sinn í gær létu það lít út fyrir að þangað væri mættur stór hópur frá Ku Klux Klan.
Fulham datt þá úr leik í undanúrslitum enska deildarbikarsins eftir 3-2 samanlagt tap gegn Liverpool.
Mikil viðbrögð ahfa skapast vegna þess á samfélagsmiðlum.
Af Wikipedia um Ku Klux Klan:
Ku Klux Klan (skammstafað KKK og nefndir Hvíthettir á íslensku áður fyrr) er heiti á fyrrverandi og núverandi samtökum í Bandaríkjunum sem halda fram yfirburðum hvíta kynstofnsins. KKK er þekkt fyrir blökkumannahatur sitt, en einnig fyrir gyðinga- og hommahatur sem og fyrirlitningu á ýmsum öðrum minnihlutahópum. Meðlimir samtakanna hafa oft sýnt að þeir eru hneigðir til ofbeldis. Þeir hafa t.d. afréttað menn án dóms og laga, unnið voðaverk og stundað krossabrennur og annað til að hræða menn til hlýðni við skoðanir sínar.
Líklegt er talið að Fulham láti það vera að bjóða upp á þessa fána á heimavelli sínum aftur.