fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Senda frá sér yfirlýsingu: Tveimur Íslendingum hefur verið hótað lífláti undanfarið – „Er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 16. maí 2023 11:27

Vanda Sigurgeirsdóttir. Mynd: Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fólk er beðið um að sýna stillingu. Kemur þetta í kjölfarið á því að tveimur dómurum hefur verið hótað lífláti á undanfarið.

Segir í yfirlýsingu KSí að of margir einstaklignar telji sig hafa rétt til þess að tala á neikvæðan hátt um dómara.

„Að vera dómari í fótbolta er mikilvægt starf og knattspyrnuíþróttin getur ekki verið án dómara. Nýliðun í félögunum gengur misvel og það er mikil áskorun fyrir knattspyrnuhreyfinguna að fjölga dómurum. Þessi áskorun er ekki bundin við fótboltann – aðrar íþróttagreinar eru líka að takast á við hana, enda er það því miður þannig að alltof margir einstaklingar telja sig hafa rétt á því að sýna neikvæða hegðun í garð dómara vegna þeirra starfa,“ segir í yfirlýsingu KSÍ.

Svo kemiur fram að hótanir um líflát hafa borist. „KSÍ vill vekja athygli á því að á síðustu vikum hefur tveimur dómurum sem dæma leiki í mótum meistaraflokka á vegum KSÍ borist líflátshótanir.“

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Getty Images

KSÍ segir að ógnanir og hótanir fari langt yfir strikið.

„Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi, og skiptir engu hvort um er að ræða barnaskap og meint grín, eða hreina og klára tilraun til líkamsárásar. Neikvæð hegðun í garð dómara á fótboltaleikjum (eða ýmsum öðrum íþróttum) er ekki ný af nálinni. Ógnanir og hótanir eru augljóslega langt yfir strikið en þegar ekki er tekið á neikvæðri hegðun og gripið inn í, þá stigmagnast hún. Ábyrgðin er vissulega þess sem hagar sér með þessum hætti, en með samhentu átaki geta allir þátttakendur leiksins unnið bug á þessari meinsemd.“

Meira úr yfirlýsingu KSÍ
KSÍ hefur verið með í undirbúningi árveknisátak þar sem landsþekktir einstaklingar hvetja til jákvæðrar hegðunar í garð dómara og verður það átak sett í gang síðar í mánuðinum.
KSÍ hvetur forráðamenn félaga til að vera vakandi fyrir neikvæðri hegðun áhorfenda á leikjum sinna félaga og grípa inn í ef þörf er á.
KSÍ hvetur þjálfara og leikmenn til að stilla sig þegar rætt er um dómara og þeirra störf í viðtölum.
KSÍ hvetur stuðningsmenn, áhorfendur og fylgjendur til að sýna störfum dómara virðingu og sýna stillingu, bæði á vellinum og þegar málin eru rædd á samfélagsmiðlum.
KSÍ hvetur fjölmiðlamenn til að fjalla um störf dómara af sanngirni og virðingu.

Áhorfendur lifa sig inn í fótboltaleiki, það er eðlilegur hluti af leiknum og þær tilfinningar sem fótboltinn vekur eru stærsta ástæðan fyrir vinsældum íþróttarinnar. Það hefur samt enginn rétt á því að ausa fúkyrðum og svívirðingum yfir dómara, ógna þeim og jafnvel hóta vegna þeirra starfa. Slík hegðun er með öllu óásættanleg og KSÍ hvetur alla þátttakendur leiksins til að líta inn á við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

England: Tíu Chelsea-menn áttu ekkert í Newcastle

England: Tíu Chelsea-menn áttu ekkert í Newcastle
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tveir sterkustu mennirnir slógust fyrir framan myndavélina: Yfirmaðurinn sagður vera brjálaður – Sjáðu myndbandið

Tveir sterkustu mennirnir slógust fyrir framan myndavélina: Yfirmaðurinn sagður vera brjálaður – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Bætti met Eiðs og er sá yngsti í sögunni

Bætti met Eiðs og er sá yngsti í sögunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vissi eftir tvo leiki að leikmennirnir væru of lélegir – Stjórnin bannaði honum að skipta um leikstíl áður en hann var rekinn

Vissi eftir tvo leiki að leikmennirnir væru of lélegir – Stjórnin bannaði honum að skipta um leikstíl áður en hann var rekinn
433Sport
Í gær

Einn sá virtasti viðurkennir risastór mistök: Vonaði að stórstjarnan myndi bjarga sér – ,,Ég bjóst ekki við brjálæðinu sem fylgdi“

Einn sá virtasti viðurkennir risastór mistök: Vonaði að stórstjarnan myndi bjarga sér – ,,Ég bjóst ekki við brjálæðinu sem fylgdi“
433Sport
Í gær

Amorim staðfestir áhuga á Fernandes – ,,Þau eru tilbúin að gera það ómögulega“

Amorim staðfestir áhuga á Fernandes – ,,Þau eru tilbúin að gera það ómögulega“