fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þessir fimm á blaði Ratcliffe yfir yfirmann íþróttamála hjá Manchester United

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. október 2023 13:00

Sir Jim Ratcliffe

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Jim Ratcliffe og félag hans INEOS er að eignast 25 prósent hlut í Manchester United og ætlar hann að láta til sín taka. Leitar hann að manni í starf yfirmanns íþróttamála hjá félaginu.

Það varð ljóst í gær að Katarinn Sheik Jassim myndi ekki eignast United en hann vildi eignast félagið í heild, ekki aðeins hlut.

Eftir innkomu Ratcliffe er talið líklegt að hann verði yfir málum sem snúa að sjálfum fótboltanum á meðan núverandi eigendur, Glazer fjölskyldan, sér um markaðsmál og þess háttar.

Sem fyrr segir ætlar Ratcliffe að fá yfirmann íþróttamála inn og eru þar fimm menn á blaði.

Eru þetta Paul Mitchell, sem áður starfaði fyrir Monaco og Tottenham. Hann hætti nýlega hjá fyrrnefnda félaginu og er eftirsóttur víða.

Þá er Dan Ashworth, yfirmaður íþróttamála hjá Newcastle, einnig á blaði en hann yrði mjög dýr.

Julian Ward og Michael Edwards, fyrrum yfirmenn íþróttamála hjá Liverpool, koma þá til greina.

Loks er Jean Claude Blanc, framkvæmdastjóri INEOS, á lista yfir hugsanlega yfirmenn íþróttamála hjá United. Hann er með reynslu og þekkingu úr íþróttaheiminum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið