Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður enska B-deildar liðsins Burnley var til viðtals í Íþróttavikunni með Benna Bó þar sem þeir félagar fóru yfir stöðuna hjá Jóhanni sjálfum sem og Burnley sem hefur verið á miklu flugi.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur undanfarin misseri verið ansi óheppin með meiðsli, sem hafa meðal annars verið tilkomin vegna mikils álags sem Jóhann fann mikið fyrir undir stjórn Bretans Sean Dyche.
Allt annað sé upp á teningnum nú þegar Jóhann Berg spilar undir stjórn Vincent Kompany hjá félaginu. Kompany glímdi sjálfur við þrálát meiðsli á sínum leikmannaferli hjá Manchester City og skilur því hvað Jóhann Berg hefur gengið í gegnum
Er ekki munur að hafa þannig þjálfara sem tengir við og skilur líkama þinn?
„Það er stóra breytingin í þessu, álagið sem hann hefur stýrt á mér í leikjum sem og æfingum. Í sumum tilfellum er ég ekki með á allri æfingunni, ég get verið úti í 40 mínútur á meðan að aðrir eru að djöflast í klukkustund eða eina og hálfa klukkustund. Þetta skiptir máli því það sem skiptir höfuðmáli í þessu er að vera heill heilsu og klár í slaginn í leikjum.
Kompany stýrir líka álaginu sem Jóhann Berg er undir í leikjum Burnley.
„Ég hef oft farið út af eftir sextíu mínútur. Auðvitað vill maður spila allan leikinn í öllum leikjum en ég vil frekar vera með heilsu í að vera klár í hvern einasta leik.
Hérna áður fyrr, þegar að Sean Dyche var við stjórnvölinn, var þetta oft á tíðum tekið á hörkunni. Þar var ekkert væl.“
Viðtalið við Jóhann Berg í Íþróttavikunni með Benna Bó má sjá í heild sinni hér fyrir neðan: