Samkvæmt frétt Evening Standard hefur Barcelona boðið Chelsea að fá þrjá leikmenn úr sínum röðum.
Barcelona er í fjárhagsvandræðum, auk þess að hafa keypt töluvert magn af leikmönnum í sumar. Því þarf að selja leikmenn til að fá inn pening.
Börsungar eru til í að selja Frenkie de Jong til Chelsea. Miðjumaðurinn hefur verið orðaður við Manchester United í allt sumar. Vandinn er að Barcelona skuldar Hollendingnum töluverðar fjárhæðir í laun, sem hann vill fá áður en hann yfirgefur félagið.
Þá er Barcelona einnig til í að selja Chelsea þá Pierre-Emerick Aubameyang og Memphis Depay.
Báðir hafa þeir reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Aubameyang fór frá Arsenal til Barcelona í janúar. Depay lék áður með Man Utd.