Manchester United hefur áhuga á að krækja í Hakim Ziyech frá Chelsea. Manchester Evening News segir frá.
Rauðu djöflarnir leita að liðsstyrk í sóknina. Félagið gerði tilraun til að landa Timo Werner frá Chelsea á dögunum en hann fór aftur til RB Leipzig.
Því horfir Erik ten Hag, stjóri United, nú til Ziyech. Hollendingurinn vann með honum hjá Ajax á sínum tíma.
Ziyech á þrjú ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Það gæti reynst vandi fyrir United, þar sem hann yrði þá dýr.
United tapaði fyrsta leik tímabilsins gegn Brighton, 1-2. Stuðningsmenn eru allt annað en sáttir með gang mála.