fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Newcastle hefur áhuga á Neymar en áhuginn er ekki gagnkvæmur

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 23. júní 2022 10:19

Neymar /Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Newcastle hefur áhuga á því að kaupa Neymar frá Paris Saint-Germain í sumar samkvæmt fréttum í Frakklandi.

Franska félagið er tilbúið að selja Neymar í sumar en félagið ætlar að byggja upp liðið í kringum Kylian Mbappe.

L’Equipe í Frakklandi segir hins vegar að Neymar hafi ekki neinn einasta áhuga á því að ganga í raðir Newcastle.

Juventus skoðar þann kosta að kaupa Neymar í sumar en hann er með samning til ársins 2027 við PSG.

Neymar er dýrasti knattspyrnumaður í sögunni en PSG keypti hann frá Barcelona árið 2017 fyrir 200 milljónir punda.

Newcastle vill styrkja lið sitt í sumar en nýir eigendur félagsins frá Sádí Arabíu hafa mikla fjármuni á milli handanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum