fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Besta deildin: Framarar unnu Valsara

Ísak Gabríel Regal
Sunnudaginn 29. maí 2022 18:02

Mynd/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fram tók á móti Val í Bestu deild karla í Safamýrinni í dag.

Valur þurfti á öllum stigunum að halda til að halda í við topplið Blika og komst í forystu á 16. mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson setti boltann í netið eftir fína sókn en Guðmundur Magnússon jafnaði fyrir Fram með skalla á 27. mínútu eftir sendingu frá Fred.

Valsarar urðu manni færri undir lok fyrri hálfleiks þegar Birkir Heimisson var rekinn af velli eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald í leiknum. Þá fór Sveinn Sigurður, markvörður liðsins, af velli snemma leiks vegna meiðsla og Kristján Hjörvar Sigurkarlsson kom inn á í hans stað.

Guðmundur Magnússon kom Frömurum yfir á 56. mínútu en Ágúst Eðvald jafnaði metin í 2-2 aðeins mínútu síðar. Þá var komið að Jannik Holmsgaard að tryggja Fram sigurinn í leiknum en það gerði hann með marki á 67. mínútu eftir sendingu frá Tiago. Lokatölur 3-2 sigur heimamanna.

Fram er í 8. sæti með átta stig, fimm stigum á eftir Val sem situr í 5. sæti og hefur nú  tapað þremur af átta deildarleikjum sínum á leiktíðinni en liðið datt úr leik í Mjólkurbikarnum á fimmtudaginn eftir 6-2 tap gegn Breiðablik.

Valur 3 – 2 Valur
0-1 Ágúst Eðvald Hlynsson (’16)
1-1 Guðmundur Magnússon (’27)
2-1 Guðmundur Magnússon (’56)
2-2 Ágúst Eðvald Hlynsson (’57)
3-2 Jannik Holmsgaard (’67)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Margir hneykslaðir á Ronaldo að mæta ekki í jarðaför Jota – „Hann er fyrirliðinn“

Margir hneykslaðir á Ronaldo að mæta ekki í jarðaför Jota – „Hann er fyrirliðinn“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal í viðræðum við Chelsea á ný

Arsenal í viðræðum við Chelsea á ný
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nístandi sorg í útför Diogo Jota – Liðsfélagar úr Liverpool og landsliðinu fjölmenntu

Nístandi sorg í útför Diogo Jota – Liðsfélagar úr Liverpool og landsliðinu fjölmenntu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag