

Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður Burnley verður í eldlínunni í kvöld þegar liðið mætir Manchester United í enska deildarbikarnum. Leikurinn verður sýndur beint á Viaplay.
Enginn Cristiano Ronaldo er í herbúðum Manchester United en félagið rifti samningi hans rétt fyrir HM í Katar.
„Ég hef spilað nokkrum sinnum gegn honum, ég held að nokkrir af ungu strákunum verður fúlir að sjá hann ekki á vellinum,“ segir Jóhann Berg.
Ronaldo sem er 37 ára gamall er nú án félags en Jóhann segir það líklega góð tíðindi fyrir Burnley að enginn Ronaldo verði á Old Trafford í kvöld.
„Þú vilt mæta þeim bestu og sumir af okkar leikmönnum missa af því. Þetta er bara einu vandamáli færra fyrir okkur, því hann er ennþá stórhættulegur í teignum. Þetta gæti verið gott fyrir okkur.“
„Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af honum.“