
Lionel Messi átti frábæran leik er argentíska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í Katar með sigri á Króatíu í gær.
Hinn 35 ára gamli Messi skoraði fyrsta mark Argentínu af vítapunktinum og lagði svo upp þriðja mark liðsins eftir stórkostleg tilþrif.
Argentínumenn mæta annað hvort Frakklandi eða Marokkó í úrslitaleiknum á sunnudag. Þau mætast einmitt í kvöld í hinum undanúrslitaleiknum.
Sem fyrr segir sýndi Messi stórbrotin tilþrif í þriðja marki Argentínu.
Hann prjónaði upp völlinn frá miðju og fór illa með Josko Gvardiol í vörn Króata.
Hér að neðan má sjá nýtt sjónarhorn af snilldartilþrifum Messi í gær.
I've reversed course on my position that filming on phones at football matches should be banned. In fact, I think everyone should be given a camera upon entry.pic.twitter.com/DE5AsglgbW
— Ronan Mullen (@RonanReigns) December 13, 2022