fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
433Sport

KSÍ gefur út yfirlýsingu eftir fréttir dagsins – „Utanríkisráðuneytið sá ekkert athugavert við fyrirhugað samstarf“

Helgi Sigurðsson
Mánudaginn 28. nóvember 2022 15:54

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ fer fyrir stjórninni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnusamband Íslands hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfar þess að utanríkisráðuneytið sagðist hafi ekki gefið grænt ljós á vináttulandsleik karlaliðs Íslands við Sádi-Arabíu fyrr í þessum mánuði.

Þetta sagði ráðuneytið í svari við fyrirspurn Stundarinnar.

KSÍ hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir ákvörðun sína um að taka boði Sádi-Araba um að leika við þá landsleik, þar með hafi sambandið tekið þátt í miklum íþrótta hvítþvotti enda er orspor Sádi-Arabíu hvað mannréttindi varðar alls ekki gott.

Utanríkisráðuneytið segist hafa fengið fyrirspurn frá KSÍ sem sneri að mögulegu samstarfi KSÍ við Sádi-Arabíu um uppbyggingu kvennaknattspyrnu í Sádi-Arabíu en ekki að umræddum vináttulandsleik.

Það er þvert á það sem formaður sambandsins, Vanda Sigurgeirsdóttir hélt fram í viðtali við Vísi í júní fyrr á þessu ári.

,,Við heyrðum í utanríkisráðuneytið á sínum tíma til að vita hvort að þar væri talið að eitthvað mælti gegn því að við spiluðum þennan leik. Svo var ekki,“ sagði Vanda við Vísi.

Yfirlýsing KSÍ
Varðandi samskipti KSÍ við utanríkisráðuneytið vill sambandið koma því á framfæri að haustið 2021 hófust samskipti KSÍ við Knattspyrnusamband Sádi-Arabíu þar sem ræddar voru hugmyndir um samstarf. Hugmyndirnar voru í mörgum liðum og snerust allar um að skiptast á þekkingu og fræðslu um uppbyggingu knattspyrnu, allt frá starfsemi og rekstri knattspyrnusambanda yfir í réttindamál, sem og grasrótarstarf, kvennaknattspyrnu og afreksstarf. Einnig var rætt um mögulegan vináttuleik milli landsliða þjóðanna í janúar 2022.

Í kjölfarið hafði KSÍ samband við utanríkisráðuneytið til að afla upplýsinga og ráðgjafar vegna stöðu mannréttindamála í Sádi-Arabíu. Utanríkisráðuneytið svaraði og sá ekkert athugavert við fyrirhugað samstarf eða fyrirhugaðan landsleik. Ekki varð þó af þessu samstarfi og ekki varð af janúar-leiknum.

Í vor barst svo beiðni frá Knattspyrnusambandi Sádi-Arabíu um vináttuleik þjóðanna í nóvember. KSÍ leitaði ekki eftir áliti utanríkisráðuneytisins vegna þess leiks – því svarið lá fyrir þegar halda átti leik í janúar. Í svari formanns KSÍ í viðtali við Vísi frá því í júní á þessu ári, sem vitnað hefur verið til í fréttum fjölmiðla, er formaðurinn að vísa til þeirra gagna sem lágu fyrir. Í svari utanríkisráðuneytisins kom fram að „ráðuneytið sjái ekkert athugavert við gerð slíks samnings, sem hefur það að leiðarljósi að stofna til samstarfs um leiki milli landsliða í knattspyrnu sem um ræðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Byrjunarliðin í Manchester slagnum – Ederson mættur í markið

Byrjunarliðin í Manchester slagnum – Ederson mættur í markið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Campbell heiðraður á Emirates – ,,Einn af okkur“

Campbell heiðraður á Emirates – ,,Einn af okkur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Van Dijk ræddi við leikmenn Fulham: ,,Hann var stressaður“

Van Dijk ræddi við leikmenn Fulham: ,,Hann var stressaður“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Missti hausinn eftir lokaflautið í gær – Liðsfélagi þurfti að bera hann af velli

Missti hausinn eftir lokaflautið í gær – Liðsfélagi þurfti að bera hann af velli
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Svona fékk Sævar að vita af brotthvarfi Freys – „„Þetta var smá sjokk fyrir mig“

Svona fékk Sævar að vita af brotthvarfi Freys – „„Þetta var smá sjokk fyrir mig“