OnlyFans-stjarnan Coyote Cutee hefur orðið þekkt fyrir það að girða niður um sig á leikjum Bari í ítölsku B-deildinni á þessari leiktíð.
Nú segist hún ætla að ganga enn lengra ef Bari kemst upp í efstu deild í vor. „Ég ætla að strippa ef Bari kemst upp í Serie A,“ segir hún.
Þetta gæti vel gengið eftir, en Bari er í fimmta sæti Serie B eftir ellefu leiki.
Fréttir bárust af því í síðasta mánuði að Coyote stæði í stappi við lögregluna á Ítalíu vegna athæfa sinna.
„Sem kona vil ég geta sýnt líkama minn þegar ég vil. Þetta er mitt val. Ég bý til efni fyrir OnlyFans-síðuna mína og sel það. Ég geri allt fyrir mig sjálfa. Ég lít samt ekki á mig sem klámstjörnu,“ sagði Coyote um afskipti lögreglunnar í síðasta mánuði.