fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Þjálfarinn lofsyngur Hákon og líkir honum við fyrrum stjörnu liðsins

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 3. nóvember 2022 10:30

Frá leiknum í gær. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jacub Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar, lofsyngur Hákon Arnar Haraldsson eftir frammistöðu leikmannsins gegn Dortmund í Meistaradeild Evrópu.

FCK var þegar úr leik fyrir einvígið á Parken í gær en náði í gott 1-1 jafntefli við Dortmund. Hákon var frábær í leiknum og skoraði mark FCK.

Hinn 19 ára gamli Hákon er búinn að festa sig í sessi sem einn besti leikmaður danska stórliðsins.

„Hákon er búinn að sýna að hann getur orðið frábær sóknarmaður fyrir FCK,“ segir Neestrup.

Neestrup líkir Hákoni við Pep Biel, sem lék með FCK frá 2019 þar til hann var seldur til Olympiacos í sumar.

„Þetta var eins og að sjá Pep Biel upp á sitt besta, það sem hann gerði í dag.

Hákon hefur sýnt að hann getur pressað endalaust. Það er klikkað hverju hann skilar í pressunni í dag. Svo bindur hann leik okkar vel saman, skapar mikið og skorar mikið.“

Neestrup sér fyrir sér að Hákon muni ná mjög langt.

„Hann hefur burði til að ná langt, eins og allir þeir frábæru leikmenn sem við höfum verið með.“

Sjá einnig: Hákon nefnir andstæðinginn sem kom mest á óvart í Meistaradeildinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nánast öruggt að hann fari til Tottenham ef þeir falla ekki

Nánast öruggt að hann fari til Tottenham ef þeir falla ekki
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Héldu brúðkaup en giftu sig ekki – Hún vildi ekki fórna þeim miklu fjármunum sem hún á

Héldu brúðkaup en giftu sig ekki – Hún vildi ekki fórna þeim miklu fjármunum sem hún á
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Jónas Guðni í stórt starf í Keflavík

Jónas Guðni í stórt starf í Keflavík
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arne Slot segist finna fyrir miklum stuðningi í starfi

Arne Slot segist finna fyrir miklum stuðningi í starfi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Enska stórliðið horfir til Barcelona – Umboðsmaðurinn vinnur í því að koma honum burt

Enska stórliðið horfir til Barcelona – Umboðsmaðurinn vinnur í því að koma honum burt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vilja ekki hleypa honum til Manchester

Vilja ekki hleypa honum til Manchester