fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sveinn neitar að sjá sig sig um hvað gerðist á Akureyri

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 10. ágúst 2022 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Arnarson knattspyrnudómari neitar að tjá sig um samskipti sín við Arnar Grétarsson þjálfara KA sem dæmdur var í fimm leikja bann. Fréttablaðið fjallar um málið.

Arnar fær bannið fyrir að orð sem hann lét falla í garð Sveins Arnarssonar, fjórða dómara í leiknum. Hann hafði fengið rautt spjald í leiknum og því sjálfkrafa tveggja leikja bann. Aga- og úrskurðanefndin bætti svo þremur leikjum við fyrir eðli brotsins.

Sögur eru á kreiki um að Arnar og Sveinn hafi átt í samskiptum degi eftir leik en KSÍ hefur ekki enn birt dóminn í heild.

„Í samtali við Fréttablaðið kveðst Sveinn Arnarsson, fjórði dómari leiksins ekki vilja tjá sig um samskipti sín og Arnars Grétarssonar, þjálfara KA. Aðspurður hvort hann vildi tjá sig um meint samskipti sín og Arnars daginn eftir leik KA og KR í Bestu deild karla kvaðst Sveinn ekki vilja gera það. ,,Nei,“ var svar hans við spurningu blaðamanns. Þá vildi hann ekki tjá sig um það hvort hann og Arnar hefðu átt í samskiptum daginn eftir leik,“ segir á vef Fréttablaðsins.

Þá hefur Arnar Grétarsson þjálfari KA ekki viljað tjá sig um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina