fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
433Sport

Lengjudeildin: Alexander byrjar frábærlega fyrir Þór – Selfoss tapaði heima

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 5. júlí 2022 19:56

Alexander Már.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexander Már Þorláksson byrjar gríðarlega vel hjá Þór í Lengjudeildinni eftir að hafa gengið í raðir liðsins nýlega.

Alexander er sonur Þorláks Más Árnasonar sem er þjálfari Þórs og skoraði tvennu í kvöld er liðið vann KV 3-1.

Alexander gerði mörk sín snemma í seinni hálfleik áður en Harley Willard bætti við þriðja marki liðsins.

Selfoss var á toppnum fyrir umferðina en liðið tapaði heima gegn Vestra á sama tíma mjög óvænt, 1-0.

Deniz Yaldir skoraði eina markið í kvöld en hann var síðar rekinn af velli í seinni hálfleik.

Selfoss tókst ekki að nýta sér þann liðsmun og var Vestri að vinna sinn fjórða sigur í sumar.

Chris Jastrzembski fékk einnig að líta rautt spjald fyrir Selfoss en það kom í blálok leiksins.

Þór 3 – 1 KV
1-0 Alexander Már Þorláksson (’47)
2-0 Alexander Már Þorláksson (’54)
3-0 Harley Willard (’74)
3-1 Björn Axel Guðjónsson (’88)

Selfoss 0 – 1 Vestri
0-1 Deniz Yaldir (’45)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Real Madrid ekki tilbúið að ganga að launakröfunum – Liverpool og Bayern sitja við borðið

Real Madrid ekki tilbúið að ganga að launakröfunum – Liverpool og Bayern sitja við borðið
433Sport
Í gær

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar
433Sport
Í gær

Arne Slot biður um meiri þolinmæði – Isak byrjar að æfa aftur í dag

Arne Slot biður um meiri þolinmæði – Isak byrjar að æfa aftur í dag
433Sport
Í gær

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot