Samkvæmt frétt Evening Standard hefur Tottenham dregið sig úr baráttunni um Gabriel Jesus, framherja Manchester City.
Hinn 25 ára gamli Jesus hefur verið orðaður frá Man City í allt sumar. Arsenal hefur aðallega verið nefnt til sögunnar sem hugsanlegur áfangastaður Brasilíumannsins. Tottenham og Real Madrid hafa það þó einnig.
Nú virðist hins vegar sem svo að Tottenham hafi hætt við.
Arsenal þarf nú að leggja fram fullnægjandi tilboð á borð Englandsmeistaranna og semja svo við Jesus.
Norður-Lundúnafélagið er í leit að framherja. Alexandre Lacazette yfirgaf félagið á dögunum og þá fór Pierre Emerick Aubameyang til Barcelona í sumar.
Eddie Nketiah gerði langtímasamning við Arsenal á dögunum. Það er þó ljóst að Arsenal vill fá annan framherja með Englendingnum.