

Roman Abramovich eigandi Chelsea þarf að skera allan kostnað niður hjá sér á meðan allar eigur hans á Bretlandi eru frystar.
Eigur Abramovich voru frystar skömmu eftir að Rússland réðst inn í Úkraínu, er það gert vegna tengsla Roman við Vladimir Putin forseta Rússlands.
Roman er að selja Chelsea en félagið má ekki eyða fjármunum í nýja samning eða leikmenn á meðan staðan er svona.
Þá segja ensk blöð frá því í dag að starfsfólk Roman og fjölskyldu hans í Bretlandi búi nú við þröngan kost. Þannig þarf öryggisgæsla fjölskylduna að kaupa eigin skeinipappír.
Roman borgar í kringum 70 milljónir króna fyrir gæslu í kringum sig og fjölskylduna.
Brauð, mjólk, te og kaffi er ekki lengur í boði fyrir öryggisverði. Þá hefur starfsfólki verið fækkað og er aðeins eitt af þremur húsum Roman sem er vaktað.
Irina Malandina fyrrum eiginkona Roman er búsett í London en saman eiga þau fimm börn. Hún sér um reksturinn í Bretlandi og er að skera hressilega niður.
ROman er að selja hesta sem hann á í Bretlandi og þá eru dýrustu bílar hans allir settir í geymslu.