fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Lengjudeild karla í beinni útsendingu á Hringbraut – Þessir leikir eru í beinni í upphafi móts

433
Þriðjudaginn 3. maí 2022 13:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsstöðin Hringbraut og ÍTF (Íslenskur toppfótbolti) hafa gengið frá samkomulagi þess efnis um að Lengjudeild karla verði með heimili á Hringbraut í sumar.

Hringbraut var með markaþátt eftir hverja umferð í Lengjudeild karla á síðasta ári og verður sami háttur á í ár. Að auki verður einn leikur úr hverri umferð í beinni útsendingu á Hringbraut sem er í opinni dagskrá.

Því verður um að ræða 22 beinar útsendingar frá leikjum Lengjudeildarinnar og 22 markaþætti þar sem farið verður yfir alla leikina í hverri umferð.

„Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi, síðasta sumar var góð reynsla en meira verður lagt í hlutina í ár. Lengjudeild karla verður eina deildarkeppnin á Íslandi sem er í opinni dagskrá. Það er mikið af stórum félögum í deildinni og við eigum von á skemmtilegu sumri. Það verður gaman að geta boðið fólkinu í landinu upp á beinar útsendingar í opinni dagskrá,“ segir Hörður Snævar Jónsson fréttastjóri íþróttadeildar Torgs.

Torg er eigandi Hringbrautar en að auki eru Fréttablaðið og DV undir sama hatti, Lengjudeildinni verða gerð góð skil á í blaði Fréttablaðsins sem og á vef og þá verður ítarleg umfjöllun um Lengjudeildina á vef DV.

Leikirnir sem verða í beinni útsendingu í upphafi móts

1 umferð
Laugardaginn 7 maí klukkan 14.00 – Grótta – Vestri

2 umferð
Föstudaginn 13 maí klukkan 19:15 – Kórdrengir – Fylkir

3 umferð
Föstudaginn 20 maí klukkan 19:15 – Afturelding – Selfoss

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið