Juventus vann Spezia á útivelli í Serie A í leik sem nú er nýlokið.
Þetta var fyrsti sigur Juventus í deildinni. Liðið var aðeins með 2 stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir viðureign dagsins.
Moise Kean kom gestunum yfir á 28. mínútu. Skömmu síðar var Emmanuel Quartsin Gyasi búinn að jafna. Staðan í hálfleik var 1-1.
Það stefndi í að vandræði Juventus ætluðu að halda áfram þegar Janis Antiste kom Spezia yfir snemma í seinni hálfleik.
Á 66. mínútu jafnaði þó Federico Chiesa fyrir Juve. Matthijs de Ligt skoraði svo sigurmark liðsins rúmum fimm mínútum síðar. Lokatölur 2-3.
Juventus er nú með 5 stig í 12. sæti deildarinnar. Spezia hefur stigi minna.