fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Gamli Séð og Heyrt blaðamaðurinn kannaði ástæðurnar: „Þetta skekur Kópavoginn“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. ágúst 2021 11:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Mikkelsen fyrrum framherji Breiðabliks hefur skrifað undir samning við Kolding í heimalandi sínu Danmörku.

Kolding leikur í þriðju efstu deild, Mikkelsen óskaði eftir því að rifta samningi sínum við Breiðablik í síðustu viku. Persónulegar ástæður voru fyrir því en Kolding krækti í Mikkelsen sem skoraði 63 mörk í 84 leikjum fyrir Breiðablik.

Breiðablik vann góðan sigur á Stjörnunni á mánudag en liðið er komið í harða titilbaráttu við Val, Víking og KA og verður mikil spenna fram eftir móti.

„Það er ekki tilviljun að Óskar Hrafn varð þjálfari ársins fyrir tveimur árum með Gróttu, hann kann eitthvað fyrir sér. Er hann ekki að drilla þetta lið í drasl,“ sagði Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður á Fréttablaðinu í sjónvarpsþætti okkar á Hringbraut í gær.

Mikkelsen kvaddi Breiðablik eftir leikinn en hann hefur reynst félaginu happafengur. „Ég veit það ekki, hann er í raun varamaður hjá Óskari. Mikkelsen er eitt besta vopn íslenska fótboltans, hann og Patrick Pedersen hafa síðustu ár verið bestu framherjarnir. Maður sá strax að það er ástæða fyrir því að hann er kallaður Mikki refur,“ sagði Benedikt.

Mikkelsen kvaddi Breiðablik vegna persónulegra ástæðna og þrátt fyrir að Benedikt viti þær þá vill hann ekki gefa allt upp.

„Gamli Séð og Heyrt blaðamaðurinn kannaði þetta aðeins: Þetta skekur Kópavoginn, þessar ástæður. Ég veit ekki hvort þeir eigi að halda honum, ef þetta er þannig að hann vill fara. Þá er þetta búið, ef hausinn er farinn,“ sagði Benedikt sem hefur starfað víða í fjölmiðlum og notið vinsælda.

Mikkelsen kvaddi Breiðablik í viðtali á Stöð2 Sport eftir leikinn og lofaði því að spila aldrei fyrir annað félag á Íslandi. „Hann talaði mjög fallega um Breiðablik, að famður Blika sé hlýr. Það er semi áhorfendabann og hann þarf að kveðja á útivelli, fallegt af honum koma í viðtal og segja þetta svona.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Margir hneykslaðir á Ronaldo að mæta ekki í jarðaför Jota – „Hann er fyrirliðinn“

Margir hneykslaðir á Ronaldo að mæta ekki í jarðaför Jota – „Hann er fyrirliðinn“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arsenal í viðræðum við Chelsea á ný

Arsenal í viðræðum við Chelsea á ný
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nístandi sorg í útför Diogo Jota – Liðsfélagar úr Liverpool og landsliðinu fjölmenntu

Nístandi sorg í útför Diogo Jota – Liðsfélagar úr Liverpool og landsliðinu fjölmenntu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir

Ætlar að halda ‘leynipartí’ þar sem engir símar verða leyfðir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag